Ráðstefna um þátt menningar og sögu í vexti og viðgangi byggðar á Íslandi sem haldin verður í Hofi þann 4. desember kl. 14-17.
Aðalfyrirlesari er Menelaos Gkartzios sérfræðingur við Centre for Rural Economy við Háskólann í Newcastle sem hefur stýrt alþjóðlegum verkefnum sem snúast um að tengja listsköpun og menningarstarf með markvissum hætti við byggðaþróun og samfélagsuppbyggingu.
Að auki verða flutt nokkur stutt erindi þar sem horft verður á viðfangsefnið frá fjölbreyttum sjónarhornum:
Pallborðsumræður að fyrirlestrum loknum.
Kaffiveitingar og allir hjartanlega velkomnir.