Byggðaráðstefnna 2018 verður haldin 16.-17. október 2018 á Fosshótel Stykkishólmi. Að ráðstefnunni standa Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Stykkishólmsbær.
Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land. Ráðstefnan er vettvangur fólks úr háskólum, stjórnsýslu, sveitastjórnum og annarra sem áhuga hafa á byggðaþróun og umhverfismálum. Leitast verður við að ná fram ólíkum sjónarmiðum þeirra sem vinna að rannsóknum og stefnumótun á vettvangi byggðamála með áherslu á umhverfismál.
Ráðstefnan á erindi við sveitarstjórnarfólk, fulltrúa atvinnulífs, stefnumótendur og alla sem eru áhugasamir um byggðaþróun og umhverfismál á Íslandi.
Ráðstefnugjald er kr. 15.000, innifalið eru veitingar, ráðstefnugögn og fyrirtækjaheimsóknir.
Skráningafrestur á ráðstefnuna er til 10. október nk.
Ath. hótelherbergi eru frátekin til 14. september n.k. eftir þann tíma er ekki hægt að ábyrgjast gistingu.
Dagskrá Byggðaráðstefnunnar 2018 er að finna hér.