log.php
 
 
Göng undir Vaðlaheiði

Hlutafélagið Greið leið ehf. var stofnað 28. febrúar 2003 sem undirbúningsfélag fyrir gerð jarðganga undir Vaðlaheiði. Að félaginu standa öll sveitarfélög í Eyþingi, auk 8 fyrirtækja og Eyþings. Tilgangur félagsins er að standa fyrir nauðsynlegum undirbúningi fyrir stofnun félags um gerð og rekstur jarðganga undir Vaðlaheiði. Þar með talið er kynningarstarf, áætlanagerð og samningar við ríki og fjárfesta.
Í stjórn Greiðrar leiðar ehf. sitja Halldór Jóhannsson, Margrét Bjarnadóttir og Pétur Þór Jónasson, sem jafnframt er formaður. Varamenn eru Eiríkur Björn Björgvinsson (1. varamaður) og Bergur Elías Ágústsson (2. varamaður).

Undirbúningur
Undanfari stofnunar Greiðrar leiðar ehf. var skoðun á vegum Eyþings á forsendum fyrir Vaðlaheiðargöngum á síðari stigum undirbúningur að stofnun félagsins. Nefnd á vegum Eyþings skilaði í ársbyrjun 2003 skýrslu  um verkefnið og á grundvelli hennar var ráðist stofnun hlutafélagsins Greiðrar leiðar ehf.
Lesa skýrslu
Fylgiskjal 1
Fylgiskjal 2

Fundargerðir undirbúningshópsins og stjórnar Greiðrar leiðar ehf. má lesa hér