log.php
 
 
Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi
 
Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
 
Áherslur ársins 2012
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðurlandi eystra eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2012 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:  
  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðalaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra.
  • Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
  • Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista.
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu.
 
Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2012. Úthlutað verður einu sinni á árinu 2012.

Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2012.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is
 

 

Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþing vegna úthlutunar á menningarstyrkjum 2012. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:

Akureyri               27. og 28. október kl. 9-12          Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð

Hrísey                  2. nóvember kl. 14.-15.30           Húsi Hákarla Jörundar

Dalvík                   3. nóv. kl. 10.30-12                    Menningarhúsinu Bergi, 2. hæð
 
Ólafsfjörður           3. nóvember kl. 13-14                 Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar

Siglufjörður           3. nóvember kl. 14.30-16             Bæjarskrifstofu Siglufjarðar

Húsavík                8. nóvember kl. 13-15                 Menningarmiðstöð Þingeyinga

Kópasker             9. nóvember 10.30-12                 Skrifstofu Norðurþings

Raufarhöfn           9. nóvember kl. 13-14.30             Skrifstofu Norðurþings
  
Langanesbyggð  10. nóvember kl. 9-11                   Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn

Grenivík             14. nóvember kl. 13-14                  Skrifstofu Grýtubakkahrepps
 
Laugum             16. nóvember kl. 10-11.30             Skrifstofu Þingeyjarsveitar

Mývatnssveit      16. nóvember kl. 13-14                  Skrifstofu Skútustaðahrepps

Akureyri            17. og 18. nóvember kl. 13-16        Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð

Grímsey               auglýst síðar

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.

 
 
 
 
 
 
 
Menningarráð Eyþings 2010-2012
  
Aðalmenn í Menningarráði Eyþings, sem kjörnir voru á aðalfundi Eyþings 2010 eru: 
 
Arnór Benónýsson, Þingeyjarsveit
Bjarni Valdimarsson, Dalvíkurbyggð
Bryndís Símonardóttir, Eyjafjarðarsveit
Gunnólfur Lárusson, Langanesbyggð
Ingibjörg Sigurðardóttir, fulltrúi Háskólans á Akureyri
Sigurður Guðmundsson, Akureyri
Þórgunnur Reykjalín, Norðurþing.
 
Formaður er Þórgunnur Reykjalín.

Fundargerðir menningarráðs má finna undir liðnum fundargerðir
 
  
 
Menningarráð Eyþings
Þann 20. júní 2007 rituðu fulltrúar sveitarfélaga á Norðurlandi eystra undir samstarfssamning um menningarmál. Samningurinn var gerður í tengslum við samning menntamála- og samgönguráðuneyta og Eyþings – samtaka sveitarfélaga í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum – um menningarmál, sem var undirritaður 27. apríl sl. Þessi  samstarfssamningur sveitarfélaganna gildir til loka árs 2009.  Í upphafi ársins 2010 var undirritaður nýr samningur til eins árs og rann sá samningur út um sl. áramót.  Unnið er að gerð nýs menningarsamings til þriggja ára.
 
Tilgangur með samningnum er að efla menningarstarf á starfssvæði Eyþings. Menningarráð Eyþings, sem skipað er sjö fulltrúum, hefur það hlutverk að úthluta fjármagni til menningarverkefna á Norðurlandi eystra samkvæmt samningi Eyþings við ríkið og hafa eftirlit með framkvæmd þess samnings.

Þrír aðalfulltrúar í menningarráði eru úr sveitarfélögum austan Vaðlaheiðar, þrír úr sveitarfélögum vestan hennar auk fulltrúa Háskólans á Akureyri.

Menningarráð Eyþings veitir m.a. fjármagn til afmarkaðra verkefna á sviði safnastarfsemi, eflingar atvinnusamstarfsemi á sviði lista, til stuðnings við menningarstarf barna, ungs fólks og aldraðra, stuðnings við menningarhátíðir og viðburði í því skyni að auka menningarlega fjölbreytni, verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og verkefna sem hafi það hlutverk að skilgreina menningarsögulegt gildi og sérkenni sveitarfélaga og svæða.

Árlegt framlag til Menningarráðs Eyþings nær til allra beinna framlaga ríkissjóðs til menningarmála á Norðurlandi eystra annarra en þeirra safna sem fá framlög skv. safnalögum og lögum um þjóðskjalasöfn. Þá eru framlög til Akureyrarbæjar vegna LA, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Listasafnsins á Akureyri og Amtsbókasafnsins greidd af ríkissjóði samkvæmt samningi Akureyrarbæjar og menntamálaráðuneytisins.

Menningarfulltrúi
Menningarfulltrúi Eyþings er Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir. Skrifstofa hennar er að Strandgötu 29 á Akureyri. Hægt er að hafa samband við Ragnheiði Jónu í símum
464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is
Ragnheiður Jóna lauk námi í nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2005 og á að baki mjög fjölbreytta reynslu úr rekstri og af stjórnun verkefna. Hún hefur að undanförnu starfað á Impru nýsköpunarmiðstöð auk þess að stunda meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Ragnheiður Jóna er búsett á Akureyri en er uppalin á Hvanneyri í Borgarfirði.