log.php
 
 

26.01.2012
Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins verður haldið í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 10, febrúar næstkomandi. Málþingið er haldið í samvinnu nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins, innanríkisráðuneytisins og Háskólans á Akureyri. Það hefst kl. 11 að morgni og lýkur síðdegis. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, flytur setningarávarp og mun jafnframt flytja lokaorð en meðal dagskrárliða þingsins eru erindi, pallborðsumræður og kynning á niðurstöðum könnunar um viðhorf sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til eflingar sveitarst... [ Meira ]

21.12.2011
127 umsóknir bárust Menningarráði Eyþings

Umsóknarfrestur um menningarstyrki rann út 22. nóvember sl. Menningarráðinu bárust alls 127 umsóknir um  75 milljónir króna. Menningarráðið fer nú yfir umsóknirnar og mun úthlutun fara fram í lok janúar 2012.



21.10.2011
Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.

Áherslur árs... [ Meira ]

Tilkynningar

Ályktanir aðalfundar Eyþings 2011