Hvað er Eyþing?
Í landinu eru starfandi átta landshlutasamtök sem einkum sinna staðbundnum hagsmunamálum sveitarfélaga og eru pólitískur samráðsvettvangur sveitarstjórna í viðkomandi landshluta. Að auki sinna nokkur samtakanna veigamiklum rekstri samstarfsverkefna.
Landshlutasamtökin eru frjáls samtök samber 81. og 86. grein sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Eyþing er landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðausturlandi frá Fjallabyggð að vestan að Langanesbyggð að austan, að báðum sveitarfélögum meðtöldum. Innan Eyþings eru 13 sveitarfélög með liðlega 29.000 íbúa. Eyþing var stofnað árið 1992 þegar Fjórðungssamband Norðlendinga var lagt niður.
Hlutverk Eyþings er að efla samvinnu sveitarfélaga í landshlutanum, gæta hagsmuna þeirra, styrkja byggð og mannlíf í landshlutanum öllum, atvinnulega, félagslega og menningarlega. Þá er Eyþingi einnig ætlað að hafa samstarf við önnur landshlutasamtök sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga, svo og héraðsnefndir á starfssvæðinu. |