02.04.2010
Sóknaráætlanir landshluta kynntar
Miðvikudaginn 7. apríl n.k. verða sóknaráætlanir landshluta lagðar fram á opnum fundi í Háskólanum á Akureyri. Forsætisráðherra setur fundinn og í framhaldinu gera fulltrúar landshlutasamtaka sveitarfélaga grein fyrir niðurstöðum þjóðfunda á hverju svæði fyrir sig og kynna drög að sóknaráætlunum landshlutans. Fundurinn hefst kl. 13:00 og er áætlað að honum ljúki um kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í Sólborg v/Norðurslóð, stofu L201.
Dagskrá:
13.00 – 13.10 Setning – Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
13.10 – 13.25 Niðurstöður Vestfjarðasvæðis: Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri FV -Fjórðungssambands Vestfjarða og Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri ATVEST -Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða
13.25 – 13.40 Niðurstöður Suðursvæðis: Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS - Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
13.40 – 13.55 Mannfjöldi, fjarlægðir og búsetuþróun: Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Akureyri
13.55 – 14.10 Niðurstöður höfuðborgarsvæðis: Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri SSH - Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
14.10 – 14.25 Niðurstöður Suðurnesja: Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri SSS - Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
14.25 – 14.40 Kaffihlé
14.40 – 14.55 Niðurstöður Norðaustursvæðis: Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri EYÞINGS – Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
14.55 – 15.10 Niðurstöður Norðvestursvæðis: Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri SSNV - Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
15.10 – 15.25 Þjóðfundir í landshlutum. Hvert er svo ferðinni heitið?: Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri
15.30 – 15.40 Niðurstöður Austursvæðis: Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdastjóri SSA - Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og Hafliði Hafliðason, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands
15.40- 15.55 Niðurstöður Vestursvæðis: Vífill Karlsson, atvinnuráðgjafi hjá SSV - Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og lektor við Háskólann á Akureyri
15.55 – 16.00 Umræðan opnuð – kynning á umræðuvef Sóknaráætlunar á www.island.is16.00 – 16.15 Samantekt og næstu skref: Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps Sóknaráætlunar 20/20
Fundurinn verður sendur út á netinu á vefslóðinni: mms://media.unak.is/malstofa
<< Til baka |