log.php
 
 

06.02.2012
Úthlutun menningarstyrkja 2012

Fimmtudaginn 2. febrúar. úthlutaði Menningarráð Eyþings rúmlega 21,5 milljón króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í Hlíðarbæ í Hörgársveit. Þetta er í áttunda sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi mennta- og menningarmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga í Eyþingi um menningarmál.

Í ár eru liðin fimm ár frá undirritun fyrsta menningarsamningsins við ríkið og á þessum árum hafa menningarráðinu borist 688 umsóknir alls. Hafa 390 verkefni hlotið verkefnastyrk samtals að upphæð 134 milljónir króna. Ljóst er að þetta samstarf ... [ Meira ]

26.01.2012
Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins verður haldið í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 10, febrúar næstkomandi. Málþingið er haldið í samvinnu nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins, innanríkisráðuneytisins og Háskólans á Akureyri. Það hefst kl. 11 að morgni og lýkur síðdegis. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, flytur setningarávarp og mun jafnframt flytja lokaorð en meðal dagskrárliða þingsins eru erindi, pallborðsumræður og kynning á niðurstöðum könnunar um viðhorf sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til eflingar sveitarst... [ Meira ]

21.12.2011
127 umsóknir bárust Menningarráði Eyþings

Umsóknarfrestur um menningarstyrki rann út 22. nóvember sl. Menningarráðinu bárust alls 127 umsóknir um  75 milljónir króna. Menningarráðið fer nú yfir umsóknirnar og mun úthlutun fara fram í lok janúar 2012.



Tilkynningar

Aðalfundur 2012

Ályktanir aðalfundar Eyþings 2011